Borgarbókasafnið á fjölbreytt úrval bóka, tímarita, tónlistar, nótna, kvikmynda, borðspila, kökuforma, tungumálanámskeiða og annars fyrir alla aldurshópa. Einnig er hægt að fá DVD spilara að láni.
Hægt að leigja eða kaupa myndlist eftir íslenska listamenn í Artóteki Borgarbókasafnsins, sem er í Grófinni, Tryggvagötu 15. Sjá nánar á artotek.is.
Hvar fæ ég bókasafnskort og hvað kostar það?
Þú getur komið á hvaða bókasafn sem er hér í Reykjavík eða á höfuðborgarsvæðinu, og fengið nýtt bókasafnskort. Það eina sem þú þarft að gera er að sýna persónuskilríki og greiða árgjald.
Allt um árgjald fyrir bókasafnskort og önnur gjöld má finna í gjaldskrá.
Eldri borgarar, 67 ára og eldri, greiða ekki fyrir bókasafnskort.
Börn og unglingar undir 18 ára aldri, öryrkjar og einstaklingar á endurhæfingarlífeyri þurfa ekki að greiða fyrir bókasafnskort.
Handhafar Menningarkortsins fá ókeypis bókasafnskort með sama gildistíma og Menningarkortið.
Bókasafnskort fyrir börn og unglinga og handhafa Menningarkorts þarf að skrá og endurnýja í afgreiðslu bókasafnsins.
Hvar get ég endurnýjað bókasafnskortið?
Þú getur komið á hvaða bókasafn sem er á höfuðborgarsvæðinu. Sjá nánar hér fyrir ofan: Hvar fæ ég bókasafnskort og hvað kostar það?
Er bókasafnskortið mitt í gildi?
Það er einfalt mál að athuga það: prófaðu að skrá þig með rafrænum skilríkjum inn á „Mínar síður“ á borgarbokasafn.leitir.is. Undir flipanum um persónuupplýsingar má sjá hver gildistími kortsins er.
Bókasafnskort er innifalið í Menningarkortinu og fylgir gildistíma þess. Til að virkja Bókasafnskort með Menningarkortinu þarf að koma í afgreiðslu safnsins. Sjá nánar um Menningarkortin á menningarkort.is.
Hvað gildir bókasafnskortið lengi og hvar get ég notað það?
Smelltu hér til að sækja stafrænt bókasafnskort fyrir snjallsíma. Stafræna kortið kemur í staðinn fyrir gamla góða plastskírteinið, en til þess að kortið gagnist þarf notandinn að vera virkur meðlimur á bókasafninu. Annað hvort með því að greiða árgjald eða fá frítt bókasafnskort.
Android notendur þurfa að setja upp appið „Smart Wallet“ til þess að nota kortið.
Get ég pantað bækur eða annað efni?
Já, með því að skrá þig inn á Mínum síðum á borgarbokasafn.leitir.is getur þú tekið frá og endurnýjað útlán.
Ef efnið er í hillu höfum við samband við þig í tölvupósti eða síma þegar efnið er tilbúið til afhendingar.
Ef efnið er inni en ekki á því safni sem þú baðst um, munum við koma því á rétt safn og láta vita um leið og hægt er að sækja. Farið er með efni milli safnana tvisvar í viku.
Ef efnið sem þig langar í er ekki inni, setjum við þig á biðlista og látum vita um leið og það er aðgengilegt og tilbúið á safninu þínu.
Á „Mínum síðum“ geturðu séð hvað þú ert með í láni og hvenær þarf að skila, þú getur fylgst með frátektum og endurnýjað útlán.
Hvað má ég hafa bækurnar/tónlistina/DVD lengi?
Útlánstími gagna er mismunandi en bækur eru að jafnaði lánaðar út í 30 daga; tónlist og myndefni í 2 vikur.
Fullorðnir geta haft allt að 40 gögn að láni á sama tíma; börn undir 18 ára aldri geta haft að hámarki 15 gögn að láni á sama tíma.
Er hægt að framlengja lán?
Já, þú getur skráð þig inn á „Mínar síður“ á borgarbokasafn.leitir.is. Þar geturðu framlengt hverju láni tvisvar sinnum. Einnig er hægt að framlengja með því að hringja í Borgarbókasafnið í síma 411-6100, senda tölvupóst á borgarbokasafn@borgarbokasafn.is, hafa samband á Facebook Messenger eða mæta á staðinn.
Hvert get ég skilað?
Þú getur skilað bókum og öðru efni á hvaða Borgarbókasafn sem er og einnig á vinasöfn okkar á Seltjarnarnesi og í Mosfellsbæ.
Hvað eru „Mínar síður“ á Leitir.is?
Á „Mínum síðum“ á borgarbokasafn.leitir.is geta innskráðir lánþegar séð yfirlit yfir útlán og skuldir, endurnýjað lán og pantað efni o.fl.
Hvar fæ ég lykilorð?
Lánþegar velja sér lykilorð með skírteinum sínum. Lykilorðið er notað til þess að skrá sig inn á „Mínar síður“ á borgarbokasafn.leitir.is og á Rafbókasafnið.
Lykilorðin komu til í júní 2022 með nýju bókasafnskerfi. Fyrir þann tíma var PIN númer notað fyrir allar innskráningar, en nú er PIN aðeins notað fyrir sjálfsafgreiðsluvélar.
Hvar fæ ég PIN?
Lánþegar velja sér PIN-númer með skírteinum sínum. Númerið er notað í sjálfsafgreiðsluvélunum.
Ef þú hefur gleymt PIN-númerinu þínu þá getur þú komið í afgreiðslu bókasafnsins með skilríki og beðið um nýtt PIN-númer og starfsfólk safnsins gengur frá því í einum grænum.
Má ég nota bókasafnskort einhvers annars eða má ég lána mitt kort?
Nei. Bókasafnskort Borgarbókasafns eru gefin út á einstakling og það er óheimilt að nota kort annarra. Sem eigandi bókasafnskorts berð þú ábyrgð á öllu efni sem lánað er út á það.
Hvað með fólk sem kemst ekki á bókasafnið vegna aldurs eða fötlunar?
Borgarbókasafnið býður upp á heimsendingarþjónustu sem nefnist Bókin heim.
Hvað kostar að taka bækur eða DVD að láni?
Það kostar ekkert aukalega að taka bækur, DVD eða hvað sem er að láni – en þú þarft að eiga gilt bókasafnskort.
Aðgangur er að tölvum og internetinu í öllum söfnum Borgarbókasafnsins, og einnig er hægt að prenta, ljósrita og skanna.
Einnig er þráðlaust net í öllum söfnum Borgarbókasafnsins og geta gestir því komist á netið í fartölvum sínum, símum o.s.frv.
Hvað gerist ef ég týni eða skemmi efni sem ég er með í láni?
Greiða þarf fyrir gögn sem glatast eða skemmast í meðförum lánþega. Viðmiðunargjald fyrir glötuð eða ónýt gögn má sjá í gjaldskrá.
Get ég pantað efni frá öðrum bókasöfnum?
Já. Þegar þú tekur frá bækur eða annað efni á borgarbokasafn.leitir.is þarft þú bara að tilgreina hvert þú vilt sækja; ef efnið er til á einhverju safnanna okkar verður næsta lausa eintak sent á milli.
Sömuleiðis er hægt að fá sendar frátektir frá samstarfssöfnum okkar í Mosfellsbæ og Seltjarnarnesi, með því að senda frátektarbeiðni á borgarbokasafn.leitir.is og biðja um afhendingu á eitthvert bókasafnanna okkar.
Loks er hægt að panta millisafnalán fyrir bækur eða annað efni frá bókasöfnum á landsbyggðinni eða utan landsins, sjá nánar í leiðbeiningum um millisafnalán.
Tekur Borgarbókasafnið við bókagjöfum?
Nei, því miður getum við ekki tekið við bókagjöfum.