Skipurit, stefnur og hagnýtar upplýsingar
Borgarbókasafn Reykjavíkur var stofnað 1919 en hóf starfsemi 19. apríl 1923. Safnið er alhliða upplýsinga- og menningarstofnun og meginhlutverk þess er að jafna aðgengi að menningu og þekkingu. Lögð er áhersla á gott aðgengi borgarbúa á öllum aldri að þjónustu, fræðslu og viðburðum á sviði menningar og lista. Safnið gegnir forystuhlutverki meðal almenningsbókasafna og sækir fyrirmyndir sínar til fremstu safna heims hvað varðar þjónustu, viðburðahald, aðstöðu og tæknibúnað. Starfsemin einkennist af fagmennsku, og ber ávallt vott um virðingu víðsýni og sköpunarkraft.

Borgarbókasafnið hefur það að markmiði að stuðla að lýðræði og ná til allra borgaranna án tillits til aldurs, kyns, kynþáttar, stjórnmálaskoðana, trúar, þjóðernis eða þjóðfélagsstöðu, skapa vettvang fyrir fólk til að rækta hæfileika sína, örva andann og sköpunarkraftinn og standa í alþjóðlegu samhengi jafnfætis bestu almenningsbókasöfnum og menningarhúsum. Borgarbókasafnið er með Regnbogavottun Reykjavíkurborgar.
Í dag eru bókasöfnin átta en miðlægar deildir sinna rekstri, miðlun og nýsköpun. Teymi skipuð starfsfólki safnanna og miðlægra deilda sinna fjölbreyttum verkefnum undir stjórn teymisstjóra.
Borgarbókasafnið er rekið af Reykjavíkurborg og heyrir undir Menningar- og íþróttaráð. Það starfar samkvæmt bókasafnalögum nr. 150 frá 2012, stefnuskrá IFLA og UNESCO um almenningsbókasöfn frá 2022 og menningarstefnu og aðgerðaáætlun Reykjavíkurborgar 2021-2030og samþykkt fyrir Borgarbókasafn frá 2025.

Stefna og aðgerðaáætlun Borgarbókasafnsins 2025-2028
Miðpunktur mannlífs í hverfunum er yfirskrift stefnu Borgarbókasafnsins 2025-2028. Stefnan er unnin í samvinnu við starfsfólk, notendur bókasafna og hagaðila. Við vinnuna var horft til menningar- og þjónustustefnu borgarinnar og metnaðarfullar stefnur stærri bókasafna um allan heim notaðar til hliðsjónar.
Gildin okkar eru:
FAGMENNSKA | VIRÐING | MENNING | AÐGENGI
Þau endurspegla fyrir hvað við stöndum sem skipulagsheild. Þau eru starfsfólki innblástur og leiðarljós í framlínustörfum og upplýsingamiðlun. Þau eru lykilsteinar í brúarsmíð þekkingar og hugmynda fólks, starfsfólks jafnt sem notenda.
Áherslur okkar eru:
- Leiða samtal, uppbyggingu, þróun og nýsköpun
- Efla lestur, læsi, miðlun, tengsl og samstarf
- Deila þekkingu, upplýsingum, rými og hlutum
- Jafna aðstöðu, aðgengi, tækifæri og þátttöku