Algengar spurningar um aðstöðu og búnað
Þarf ég bókasafnskort, kunnáttu, skilríki, dvalarleyfi, íslenskukunnáttu o.s.frv. til að nota aðstöðu eða tæki Borgarbókasafnsins?
- Öll eru velkomin en yngri börn ættu að vera í fylgd með fullorðnum. Aðeins þarf bókasafnskort þegar aðstaða eða tæki er bókað til einkanota og þegar Kompan-hlaðvarpsstúdíóið er bókað.
Kostar að nota aðstöðuna?
- Nei, það er frítt inn en við rukkum lágmarks efniskostnað fyrir t.d. vínilskurð og barmmerki. Hér getur þú séð gjaldskrána.
Takið þið við gjöfum? - t.d. tölvum eða hljóðfærum?
- Við tökum fagnandi við tækjum sem eru í lagi og geta styrkt starfið! Vinsamlegast sendu okkur skilaboð ef þú ert með eitthvað sem þú telur að gæti nýst!
Má selja það sem maður býr til?
- Allt sem þú býrð til með tækjabúnaði safnsins er þín eign og þú mátt gera það sem þér sýnist við það - þó er ekki í boði að fjöldaframleiða hluti.
Má ég halda viðburð, kenna eða leiða smiðju í rýmum safnsins?
- Aðstaðan og tæknibúnaðurinn er ekki aðeins fyrir kennara eða skapandi aðila heldur öll þau sem þurfa stað til að deila þekkingu. Við tökum fagnandi á móti hugmyndum að nýjum smiðjum. Dæmi um smiðjur sem haldnar hafa verið eru: myndvinnsla, ljósmyndun, forritun, lagasmíði, raftónlistar- og endurvinnslusmiðjur.
Get ég bókað kynningu?
- Starfsfólk Borgarbókasafnsins leggur sig fram við að kynna aðstöðu, tæki og dagskrá sem snýr að skapandi tækni, svo sem á ráðstefnum og sýningum þar sem markhópurinn er fólk sem vinnur að skapandi verkefnum.
- Ef þú vilt bóka kynningu frá okkur á viðburð tengdan kennslu eða skólastarfi getur þú sent okkur línu á borgarbokasafn@borgarbokasafn.is