BORGARBÓKASAFNIÐ

Kitten eftir Stacey Yu er bók mánaðarins í bókaklúbbi Laufeyjar og eru eintök af bókinni fáanleg hjá Borgarbókasafninu. Ef þú vilt lesa með Laufeyju og bókaklúbbnum er hægt að smella á slóðina hér, taka bókina frá og sækja eintakið svo í bókasafnið þitt.
Skáldsagan Kitten er frumraun bandaríska rithöfundarins Stacey Yu og fjallar um unga konu sem tekur miklu ásfóstri við kött kærastans um leið og hún á basli við að takast á við það verkefni að vera fullorðin og komast að því hvað hún vilji gera í lífinu.
Við minnum einnig á sérstök Laufeyjar-bókasafnsskírteini sem enn eru til hjá okkur frá síðasta Laufeyjar-degi í ágúst. Kortin má nálgast í afgreiðslu Borgarbókasafnsins í Grófinni og er m.a. hægt að skipta út gömlu korti fyrir nýtt Laufeyjar-kort.
