BORGARBÓKASAFNIÐ

Miðstöð íslenskra bókmennta blæs til stórsóknar í lestrarhvatningu fullorðinna undir yfirskriftinni "Bókaðu stund fyrir bók".
Markmið lestrarhvatningarinnar er að fá fólk til að gefa sér tíma til lesturs og gera bóklestur að raunhæfum hluta af daglegu lífi. Áherslan er á jákvæða hvatningu og einfaldar og aðgengilegar leiðir til að auka lestur.
Á vefnum bokastund.is má finna skemmtilegar hugmyndir að því hvernig megi bæta bóklestri inn í daglegt líf. Þar er auk þess fjallað um ráð til að stofna bókaklúbb og hvernig vinnustaðir geti lagt sitt að mörkum með t.d. lestraráskorunum, bókagjöfum, bókaklúbbum eða sameiginlegum lestrarstundum.
Borgarbókasafnið fagnar mjög þessu frábæra framtaki Miðstöðvar íslenskra bókmennta og notendur hvattir til að kynna sér fjölbreytta dagskrá sem tengist bókmenntum og samveru í kringum lestur.