BORGARBÓKASAFNIÐ

Vissir þú að við bjóðum upp á netta og meðfærilega DVD spilara til útláns á eftirfarandi söfnum Borgarbókasafnsins?
Grófinni ・ Kringlunni ・ Sólheimum ・ Gerðubergi ・ Spönginni ・ Árbæ
Nú geta kvikmyndaþyrstir notendur bókasafnsins sökkt sér í meistaraverkin í ró og næði, notið þess að horfa á vandaðar heimildamyndir heima í stofu og kannað framandi lönd og heima!
Í Grófinni eru hvað flestir diskar - en það er alltaf hægt að taka frá á borgarbokasafn.leitir.is og sækja á það safn sem hentar best.