BORGARBÓKASAFNIÐ
Reddingakaffi er mánaðarlegur viðburður þar sem hægt er að fá aðstoð frá sjálfboðaliðum og öðrum viðstöddum við að gera við hluti og vinna gegn sóun. Komdu með hluti sem þér þykir vænt um en eru hættir að virka. Föt, raftæki, brotinn bolli, sprungin vindsæng – við reynum eftir bestu getu að laga og bæta saman. Hjálpumst að við að vinna gegn sóun og halda hlutum lengur í hringrásinni. ♻️ GERUM VIÐ HLUTI SAMAN! ♻️ DAGSKRÁ 2026: Sunnudagur, 1. mars - í samstarfi við Framtíðarfestivalið Sunnudagur, 12. apríl Sunnudagur, 3. maí Sunnudagur, 7. júní Sunnudagur, 6. september – HÆTT VIÐ Sunnudagur, 18. október – Viðgerða-maraþon 🎉 í tilefni Alþjóðlega viðgerðadagsins Sunnudagur, 1. nóvember Sunnudagur, 6. desember Reddingakaffi er á vegum Hringrásarseturs Íslands og Munasafns RVK Tool Library. Nánari upplýsingar veita: Guðrún Elísa Ragnarsdóttir, verkefnastjóri Borgarbókasafninu Grófinni gudrun.elisa.ragnarsdottir@reykjavik.is | 411 6170 Anna C W de Matos, formaður Hringrásarseturs Íslands anna@munasafn.is
Helstu upplýsingar um aðgengi að Borgarbókasafninu Grófinni: https://borgarbokasafn.is/adgengi-borgarbokasafnid-grofinni
Sunnudagur 18. okt. 2026 – 13:00-16:00
Borgarbókasafnið Grófinni
Tryggvagata 15, 101 Reykjavík