BORGARBÓKASAFNIÐ
Komdu og búðu til þitt eigið umslag á Borgarbókasafninu Árbæ! Vissir þú að það er mun auðveldara að búa til umslag en flesta grunar? Margir hafa gaman af því að útbúa sín eigin tækifæriskort og þá er handgert umslag sannarlega punkturinn yfir i-ið! Í þessari skemmtilegu smiðju lærum við einfalda og sniðuga aðferð til að búa til falleg umslög og gefa kortagerðinni enn persónulegri blæ. Við eigum saman notalega og skapandi stund þar sem leiðbeinandi er á staðnum og aðstoðar við umslagagerðina. Pappír og stimplar verða í boði fyrir þau sem vilja skreyta umslögin sín á staðnum. Þátttakendum er einnig velkomið að koma með sinn eigin efnivið og áhöld ef þau vilja setja sinn persónulega stíl á verkin sín. Fyrir hverja er smiðjan? Smiðjan hentar fullorðnum og eldri börnum. Yngri börn eru velkomin en þurfa að vera í fylgd fullorðins sem getur veitt aðstoð. Við hvetjum fullorðna til að mæta og leyfa sköpunargleðinni að njóta sín í notalegri og skemmtilegri stund. Aðgangur er ókeypis og skráning er óþörf. Tilbúningur er viðburðarröð sem fer fram á: Borgarbókasafninu Spöng fyrsta miðvikudag hvers mánaðar Borgarbókasafninu Árbæ annan þriðjudag hvers mánaðar Borgarbókasafninu Úlfarsárdal fyrsta fimmtudag hvers mánaðar Nánari upplýsingar veitir: Heiðrún G. Viktorsdóttir | sérfræðingur heidrun.greta.viktorsdottir@reykjavik.is
Þriðjudagur 8. sept. 2026 – 15:30-17:30
Borgarbókasafnið Árbæ
Hraunbær 119, 110 Reykjavík