BORGARBÓKASAFNIÐ
Finnst þér gaman að skrifa og teikna? Viltu búa til sögur? Komdu í sögusmiðjuna og lærðu að búa til fyndnar og spennandi sögur. Þemað í sögusmiðjunni er vinátta. Eva Rún Þorgeirsdóttir, rithöfundur, og Blær Guðmundsdóttir, teiknari, gáfu út bókina Bestu vinir á dögunum og ætla af því tilefni að halda sögusmiðju þar sem þemað er vinátta. Þær hafa búið til fjölmargar barnabækur og kennt krökkum um allt land að semja sögur í Svakalegu sögusmiðjunni. Bestu vinir hlaut barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur árið 2026. Athugið: skráning nauðsynleg! Smiðjan hentar börnum frá 8 til 12 ára. Nánari upplýsingar veitir: Ástrún Friðbjörnsdóttir, sérfræðingur astrun.fridbjornsdottir@reykjavik.is | 411 6250
Laugardagur 21. nóv. 2026 – 13:00-15:00
Borgarbókasafnið Spönginni
Spöngin 41, 112 Reykjavík