BORGARBÓKASAFNIÐ
Skapandi smiðja fyrir börn og fjölskyldur Er síminn farinn að fara í taugarnar á þér? Eða gæti verið að síminn sé orðinn þreyttur á þér? Í smiðjunni gefum við sköpunargleðinni lausan tauminn og skreytum svefnteppi fyrir símann úr Faraday-efni, sérstöku efni sem hindrar símasamband. Símateppin hjálpa okkur að leggja símann til hvílu um stund og skapa meira rými fyrir samveru, leik og gæðastundir. Emma Shannon er skosk textíllistakona og hönnuður með aðsetur í Reykjavík. Í verkum sínum kannar hún mörkin milli framtíðartækni og hefðbundins handverks með því að tvinna saman efnisrannóknir og skapandi vinnu með höndunum. Hún er hluti af listahópnum Endurtakk og verkefnastjóri textílefna í Góða hirðinum þar sem hún leggur áherslu á skapandi endurnýtingu og viðgerðir. Viðburðurinn er hluti af viðburðaröðinni Mjúkt net – samfélagslegt miðlalæsi sem hlaut styrk úr Bókasafnasjóði. Borgarbókasafnið býður upp á fjölbreytta dagskrá fyrir börn og fjölskyldur dagana 11. - 18. október sem upptakt að miðlalæsisviku í öllum átta söfnunum. Nánari upplýsingar veitir: Ingibjörg Ösp Óttarsdóttir verkefnastjóri barna- og unglingastarfs – lestrarhvatning og fræðsla ingibjorg.osp.ottarsdottir@reykjavik.is | 411 6146
Sunnudagur 11. okt. 2026 – 13:00-15:00
Borgarbókasafnið Árbæ
Hraunbær 119, 110 Reykjavík