BORGARBÓKASAFNIÐ
Breski bókameðferðarfræðingurinn og rithöfundurinn Bijal Shah heldur opinn fyrirlestur í Borgarbókasafninu Grófinni sem nefnist: Lækningamáttur bóka – kynning á bókameðferð. Þar fjallar hún um sögu bókameðferðar og hvernig lestur getur stutt við geðrækt, samkennd, ígrundun og seiglu í daglegu lífi. Bókameðferð (e. bibliotherapy) byggir á þeirri hugmynd að bækur og lestur geti hjálpað fólki að skilja eigin reynslu, nefna tilfinningar og vinna úr þeim, auk þess að sjá aðstæður sínar í nýju ljósi. Aðferðin á sér langa sögu og er í dag nýtt á fjölbreyttan hátt á sviðum geðheilbrigðis, menntunar og vellíðunar. „Í sinni einföldustu mynd er bókameðferð markviss notkun bókmennta til að styðja við bata, sjálfsskilning og persónulegan þroska. Hún nýtir til dæmis skáldverk, fræðibækur, endurminningar, ljóð, goðsögur, ritgerðir eða önnur frásagnarform,“ segir Bijal um aðferðina. Bijal Shah er brautryðjandi á sviði bókameðferðar og höfundur bókarinnar Bibliotherapy: The Healing Power of Reading. Hún er einnig stofnandi Book Therapy, vettvangs sem helgaður er tilfinningalegum og sálrænum áhrifum bókmennta. Hún vinnur með einstaklingum, skólum, stofnunum og innan heilbrigðisþjónustu. Skrif hennar og bókmenntaráðleggingar hafa meðal annars birst í The Guardian, BBC Culture, Marie Claire og Good Housekeeping. Bijal hefur sjálf nýtt bækur sem uppsprettu aukinna lífsgæða. Fyrirlesturinn fer fram á ensku. Viðburðurinn er opinn öllum og ókeypis. Bijal Shah mun einnig halda heilsdags vinnustofu um bókameðferð á meðan á dvöl hennar á Íslandi stendur. Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu Borgarbókasafnsins. Frekari upplýsingar veitir: Þorgerður Agla Magnúsdóttir Verkefnastjóri | Bókmenntir og lestrarhvatning Borgarbókasafninu Thorgerdur.Agla.Magnusdottir@reykjavik.is
Miðvikudagur 28. okt. 2026 – 17:00-18:00
Borgarbókasafnið Grófinni
Tryggvagata 15, 101 Reykjavík