BORGARBÓKASAFNIÐ
Dagrún Ósk Jónsdóttir og Jón Jónsson þjóðfræðingar af Ströndum rifja upp næstum því gleymdar sögur um íslensku jólafólin. Flestir þekkja gamlar og ljótar sögur um Grýlu sem var hryllileg mannæta og jólasveinana sem forðum voru til vandræða hvar sem þeir komu. Sumir í fjölskyldunni eru samt að mestu gleymdir líkt og fyrri eiginmenn Grýlu og jólasveinar eins og Lungnaskvettir, Flórsleikir eða Flotnös. Sagt verður frá óhugnanlegum sögum og þjóðtrú um Grýlu og hennar hyski. Sumt af því hentar varla mjög ungum börnum eða viðkvæmum sálum en öll sem þora eru hjartanlega velkomin! Nánari upplýsingar veitir: Guttormur Þorsteinsson, sérfræðingur guttormur.thorsteinsson@reykjavik.is | s. 411 6204
Fimmtudagur 3. des. 2026 – 17:30-18:30
Borgarbókasafnið Kringlunni
Listabraut 3, 103 Reykjavík