BORGARBÓKASAFNIÐ
Verið velkomin á skiptimarkað þar sem við skiptumst á grímubúningum Við bjóðum uppá vettvang fyrir börn að skipast á grímubúningum á safninu. Hrekkjavakan er handan við hornið og því tilvalið að koma með „gamla“ grímubúninga og skipta út fyrir „nýja“ Öllum býðst að koma með búninga á markaðinn og velja grímubúninga sem þeim líst vel á til að taka með heim. Inná Borgarbókasafninu í Gerðubergi verður sett upp fataslá þar sem hægt er að hengja upp á. Það er velkomið að taka sér búning án þess að koma með annan í staðinn og eins má gefa búninga án þess að taka aðra af slánni. Nánari upplýsingar veitir: Svanhildur Halla Haraldsdóttir, sérfræðingur svanhildur.halla.haraldsdottir@reykjavik.is | 411 6170
Fimmtudagur 22. okt. 2026 – 08:00-18:00
Borgarbókasafnið Gerðubergi
Gerðuberg 3, 111 Reykjavík