BORGARBÓKASAFNIÐ
Bók desembermánaðar er í takt við árstímann, Aðventa eftir Gunnar Gunnarsson. Hún byggir á sannri frásögn af eftirleit Fjalla-Bensa í desember árið 1925 sem birtist í fyrsta hefti tímaritsins Eimreiðarinnar árið 1931. Eins og segir í umfjöllun Rúv um bókina en þar er hún lesin árlega á aðventunni eins og á mörgum íslenskum heimilum. Þetta er líka það verk Gunnars sem hefur verið þýtt á hvað flest tungumál. Aðventa kom út í íslenskri þýðingu Magnúsar Ásgeirssonar árið 1939 en árið 1954 í þýðingu Gunnars sjálfs. Sú þýðing var notuð við endurútgáfu bókarinnar 2007. Hægt er að nálgast upplestur á Aðventu á vefsíðu Rúv: https://www.ruv.is/utvarp/spila/adventa/7122/ Leshringurinn Sólkringlan hittist venjulega þriðja fimmtudag í mánuði kl. 17.30-18.30 í Borgarbókasafninu Kringlunni, frá september til maí. Dagskrá haustsins 2026 er eftirfarandi: -17. september: Jarðnæði eftir Oddnýju Eir Ævarsdóttur -15. október: Hægara pælt en kýlt eftir Magneu J. Matthíasdóttur -23. nóvember: Lungu eftir Pedro Gunnlaug Garcia -17. desember: Aðventa eftir Gunnar Gunnarsson Umsjón og skráning: Guttormur Þorsteinsson, sérfræðingur guttormur.thorsteinsson@reykjavik.is | 411 6204
Fimmtudagur 17. des. 2026 – 17:30-18:30
Borgarbókasafnið Kringlunni
Listabraut 3, 103 Reykjavík