BORGARBÓKASAFNIÐ
Gervigreind er orð sem ber æ oftar á góma og er umfjöllunarefni þessa fyrsta fræðakaffis haustsins. Er þetta fyrirbæri eitthvað sem við þurfum að hafa áhyggjur af eða einfaldlega góð viðbót sem sparar okkur vinnu og tíma? Í erindi sínu ræðir Saga Úlfarsdóttir hvort og þá hvernig nýting gervigreindar hefur áhrif á okkar daglega líf og þá ekki síst atvinnu okkar. Hvað gerist þegar við erum komin með stafrænan vinnufélaga? Hver verða áhrif gervigreindarinnar á okkur persónulega, samfélagið, vinnustaðinn og framtíðina. Saga Úlfarsdóttir er verkfræðingur með sérhæfingu í gagnavísindum og gervigreind. Hún hefur m.a unnið sem Head of AI hjá Travelshift og ráðgjafi í gervigreindarteymi Advania. Hún er nú með eigið ráðgjafafyrirtæki sem hjálpar fyrirtækjum að nýta gervigreind á ábyrgan hátt. Fræðakaffi er viðburðaröð sem fer fram á Borgarbókasafninu í Spönginni og hefur notið mikilla vinsælda. https://borgarbokasafn.is/fraedakaffi-i-sponginni Nánari upplýsingar: Saga Úlfarsdóttir, verkfræðingur saga@sasu.is | 772 3272 Katrín Guðmundsdóttir, Borgarbókasafninu Spönginni katrin.gudmundsdottir@reykjavik.is | 411 6230
Mánudagur 19. okt. 2026 – 16:30-17:30
Borgarbókasafnið Spönginni
Spöngin 41, 112 Reykjavík