BORGARBÓKASAFNIÐ

Verið velkomin á bókasafnið að hlusta á sögu fyrir alla fjölskylduna. Lesin verður sagan Berglind elskar Rúsínu eftir Annica Hedin og Per Gustavsson. Berglind er að fara í afmæli og á að velja gjöf fyrir afmælisbarnið. En stundum er erfitt að gefa öðrum gjöf þegar maður vill sjálfur eiga gjöfina… hvað er þá til ráða? Eftir upplesturinn er boðið upp á skemmtilegt föndur. Sögustundirnar í Borgarbókasafninu Spönginni fara fram þriðja þriðjudag hvers mánaðar. Þær eru í Sjónarhóli, sýningarsal bókasafnsins. Öll velkomin. Nánari upplýsingar veitir: Ástrún Friðbjörnsdóttir, sérfræðingur astrun.fridbjornsdottir@reykjavik.is | 411 6250
Þriðjudagur 17. nóv. 2026 – 16:30-17:30
Borgarbókasafnið Spönginni
Spöngin 41, 112 Reykjavík