BORGARBÓKASAFNIÐ

Hönnunarmars 2026 - Hvernig á að framtíðast?

sáningardagatal og blómapota og svefnpokar fyrir síman

Hvernig eigum við að framtíðast saman? Við bjóðum þér á viðburðaröð þar sem bókasafnið verður vettvangur fyrir innihaldsríkar upplifanir, stað þar sem við meðvitað tengjust og aftengjust og hugum að framtíð sem einkennist af meiri umhyggju í sambandi okkar við tækni, náttúru og komandi kynslóðir.  

Við munum ímynda okkur með huga og höndum, sáum fræjum fyrir vorið með aðstoð sáningardagatals sem hannað er af Kakkalakki studio, standa frammi fyrir innsetningu um gagnasjálfið frá Samtökum um mannvæna tækni og Alexander Jean Fontenay, taka þátt í spennandi textíltilraun þar sem notast er við Faraday-efni frá Endurtakk studio og Emma Shannon og kitla bragðlaukana með lista- og matreiðslukonunni Pola Sutryk sem býður okkar í framtíðarsmakk þar sem hún gerir tilraunir með gagnkvæmari leiðir til að neyta matar og nærast.  

Þessi viðburður fer fram í viðbyggingunni milli Grófarhúss (Tryggvagötu 15) og Biang (Tryggvagötu 13).

DAGSKRÁ LAUGARDAGINN 9. MAÍ, kl. 11:00-18:00 

  • 11:00 – Vonarsprotar - plöntum fræjum og syngjum saman
  • 13:00 -  Viljandi aftenging - svefnpokar fyrir síma og aðrar tilraunir með Faraday-efni
  • 15:00 - Framtíðarsmakk - gagnkvæmari leiðir til að neyta matar og næringast

 

Sjá dagskrá Hönnunarmars 2026
 

Nánari upplýsingar veitir: 
Martyna Karolina Daniel - Verkefnastjóri – Aðgengi og samfélagsleg þátttaka
martyna.karolina.daniel@reykjavik.is