BORGARBÓKASAFNIÐ

Hvað er Hringrásarsafnið?
Hringrásarsafnið er samstarfsverkefni Borgarbókasafnsins og Munasafnsins RVK Tool Library. Sjálfsafgreiðsluskápa fulla af gagnlegum tækjum og tólum má finna á Borgarbókasafninu Grófinni, Borgarbókasafninu Gerðubergi, Borgarbókasafninu Kringlunni og Borgarbókasafninu Úlfarsárdal.
Á Hringrásarsafninu getur þú fengið að láni allskonar hluti og smærri verkfæri.
Hér sérðu yfirlit yfir þá hluti sem eru í boði til útláns hverju sinni. Hlutum er skipt út reglulega:
Borgarbókasafnið Grófinni
Borgarbókasafnið Gerðubergi
Borgarbókasafnið Kringlunni
Borgarbókasafnið Úlfarsárdal

Hver sem er getur fengið aðild að Hringrásarsafninu. Meðlimum er frjálst að fá lánaða eins marga hluti og þeir þurfa og eins oft og þá langar.
Árgjald
Athugið að Hringrásarsafnið er útibú á vegum Munasafnsins, en áskrift að Hringrásarsafninu jafngildir ekki aðild að Munasafninu (meðlimir Munasafnsins hafa hins vegar aðgang að Hringrásarsafninu). Þau sem hafa áhuga á að gerast meðlimir Munasafnsins geta fundið upplýsingar á vefsíðu þeirra munasafn.com.
Hér er skemmtilegt viðtal úr Landanum, við umsjónarfólk Munasafnsins og Hringrásarsafnsins, þar sem farið er í nánar í saumana á þessu einstaka verkefni.
Nánari upplýsingar:
thorlakur@circularlibrary.network
eða
technician@munasafn.is | 774 5779