BORGARBÓKASAFNIÐ

Borgarbókasafnið er, ásamt 8 öðrum almenningsbókasöfnum í Evrópu, þátttakandi í alþjóðlegu verkefni til þriggja ára sem nefnist make-a-thek.
Markmiðið með þessu verkefni er að skapa vettvang fyrir skapandi, forvitna, og meðvitaða neytendur þar sem þekkingu er deilt og við lærum í sameiningu nýjar aðferðir. Áhersla er lögð á fræðslu um betri nýtingu á fatnaði, t.d. hvernig best er að gera við föt og nýta afgangsefni á skapandi hátt.
Þetta er ferðalag og áfangastaðurinn mótast með þátttöku sem flestra.
Hvar fara viðburðirnir fram?
make-a-thek viðburðir og smiðjur fara fram meðal annars í Gerðubergi, Árbæ og Spönginni.
Í Borgarbókasafninu verður aukin áhersla á bækur og tímarit sem tengjast hannyrðum og fataviðgerðum og því um að gera að fá lánað heim spennandi efni sem styður við þá fræðslu sem í boði er á viðburðunum.
make-a-thek verkefnið er styrkt af New Horizon sjóð Evrópusambandsins.
Nánari upplýsingar um verkefnið veitir:
Ilmur Dögg Gísladóttir, deildarstjóri Borgarbókasafninu Gerðubergi
ilmur.dogg.gisladottir@reykjavik.is