BORGARBÓKASAFNIÐ

Kompan er fullbúið hlaðvarpsstúdíó á 5. hæð Borgarbókasafnsins í Grófinni.
Við bjóðum einnig upp á aðstöðu til að taka upp hlaðvörp á Borgarbókasafninu Úlfarsárdal, sjá hljóðver og æfingarými.
Notendur bókasafnsins geta bókað Kompuna og nota upptökubúnað safnins til að taka upp hlaðvarp þeim að kostnaðarlausu.
Gestum er frjálst að bóka allt að fjóra klukkutíma í senn í Kompunni mest tvisvar í viku.
Kompan opnar á sama tíma og Grófarhús en lokar klukkutíma fyrir lokunartíma þess.
Notendur þurfa að hafa gilt bókasafnskort hjá Borgarbókasafninu.
(Ef þú vilt athuga hvort kortið þitt sé í gildi getur þú skráð þig inn á „Mínar síður“ á borgarbokasafn.leitir.is. Ef kortið er útrunnið er hægt að endurnýja kortið á bókasafninu.
Í Kompunni býðst fólki að taka upp allt að fjórar rásir í senn, hver með sinn hljóðnema, og þar eru sæti fyrir fimm. Fjórir geta hlustað á upptökur og hljóðblöndun í einu. Fólki býðst einnig aðgangur að tölvu til eftirvinnslu með aðgengi að forritunum Audacity og Reaper, en kennsluleiðbeiningar á forritin eru aðgengilegar í rýminu.
Í Kompunni er að finna:
Ef þú vilt spyrja frekar út í tækjabúnað eða fyrirkomulag, eða rabba um Kompuna almennt, skaltu senda okkur línu á hladvarp@borgarbokasafn.is.