Krílastundir
Í Krílastundum gefst þeim sem eru með ung börn tækifæri til að hittast, leika, lesa og syngja saman með ungviði sínu og skiptast á sögum um lífið, tilveruna og auðvitað börnin. Stundum er boðið upp á fræðsluerindi um börn og uppeldi en einnig á bókasafnið mikið af forvitnilegum og fræðandi bókum og tímaritum tengdu efninu sem hægt er að glugga í á staðnum eða fá lánað heim ef þú átt bókasafnskort.
Auðvitað er líka mikið úrval af barnabókum á ýmsum tungumálum!
Stundirnar eru hugsaðar fyrir fjölskyldur með ungabörn og börn á leikskólaaldri.
Góð skiptiaðstaða er á öllum söfnunum og alltaf heitt á könnunni.

Borgarbókasafnið Árbæ
Alla fimmtudaga kl. 10:00-11:00
Notalegar og óformlegar samverustundir í Krílahorninu. Eigum saman notalega stund með yngstu krílunum við leik, spjall og lestur.
Borgarbókasafnið Grófinni
Alla mánudaga og fimmtudaga kl. 10:30 – 11:30
Á dagskrá árið um kring!
Við leikum, lesum og spjöllum saman. Kl. 11 býður starfsmaður upp á söngstund fyrir börnin.
Staðsetning: 2.hæð - barnadeild
Borgarbókasafnið Gerðubergi
Alla miðvikudaga kl. 10:00 - 12:00
Í samvinnu við Borgarbókasafnið býður Memmm upp á krílastundir.
Staðsetning: Bókasafnið á efri hæðinni Gerðubergi.
Borgarbókasafnið Spönginni
Alla þriðjudaga kl. 10:00 - 11:00
Notalegar samverustundir við leik, lestur og spjall. Einnig syngjum við saman öll skemmtilegu leikskólalögin þegar andinn kemur yfir okkur, við gítarundirleik starfsmanns.
Borgarbókasafnið Úlfarsárdal
Alla fimmtudaga kl. 10:30 - 11:30
Notalegar og óformlegar samverustundir í Krílahorninu. Heitt á könnunni fyrir þau fullorðnu og pelahitari á staðnum.
Nánari upplýsingar veitir:
Ingibjörg Óttarsdóttir, verkefnastjóri barna- og unglingastarfs
ingibjorg.ottarsdottir@reykjavik.is | 411 6146