BORGARBÓKASAFNIÐ

Það er skemmtilegt að lesa og enn skemmtilegra að deila hugmyndum um bókmenntirnar með öðrum! Hjá okkur hittast reglulega hópar sem spjalla um alls kyns bókmenntir einu sinni í mánuði yfir vetrartímann. Kíktu á þá hópa sem eru í boði og komdu að lesa með okkur!
Langar þig að stofna þinn eigin leshring eða spjallhóp þar sem þið ræðið um bækur að þínu skapi? Þá hvetjum við þig til að hafa samband með því að senda okkur tölvupóst á það safn sem þig langar að hafa leshringinn eða spjallhópinn og við aðstoðum þig að koma honum á laggirnar.
Þegar stofna á nýjan leshring eða spjallhóp er gott að hafa eftirfarandi atriði í huga:
Aðkoma Borgarbókasafnsins felst í eftirfarandi:
Bókaklúbbur í poka er þjónusta við leshringi og bókaklúbba. Notendur geta fengið sérstakan poka lánaðan sem inniheldur allt sem þarf til að halda bókaklúbb. Hvort sem það er fyrir vini, vinnustaði eða fjölskyldu er hægt að rúlla upp bókaklúbb með lágmarksfyrirhöfn. Lesið meira um þjónustuna hér.
Nánari upplýsingar veitir:
Þorgerður Agla Magnúsdóttir, verkefnastjóri bókmennta og lestrarhvatningar
thorgerdur.agla.magnusdottir@reykjavik.is