BORGARBÓKASAFNIÐ

Lopi og Orð eru notalegar stundir þar sem öll sem hafa gaman af handverki eins og prjóni, hekli og útsaumi og hafa grunnþekkingu í íslensku eru velkomin. Hugmyndin á bak við viðburðinn er að skapa rými þar sem íslenskunemendur geta æft sig að tala málið og tengst íslenskri menningu í afslappaðri og notalegri stemningu.
Þó leyfilegt sé að grípa til enskunnar eru þátttakendur á öllum getustigum hvattir til að nota íslensku sem aðal samskiptatungumálið á viðburðunum. Á sama hátt er gert ráð fyrir að þátttakendur sýni hver öðrum þolinmæði, sérstaklega þeim sem eru enn að þróast í íslensku en eru að gera sitt besta.
Við munum hafa kaffi/te fyrir öll, prjónauppskriftir og orðaforðablað.
Íslenskumælandi eru einnig hvött til að vera með okkur, spjalla við þátttakendur og deila hannyrðaþekkingu sinni með öðrum.
Við hittumst annan hvern sunnudag.
Kl. 15:00 til 16:30
2. hæð Grófinni
Þessi viðburður er á vegum Huldumáls, félag stúdenta í Íslensku sem öðru máli.
Hafa samband við: huldumal@hi.is
Fyrirvari: Allir textarnir eru þýddir af nemendunum í Íslensku sem öðru mál, ef eitthvað er óljóst eða ekki skynsamlegt endilega sendið okkur tölvupóst eða lesið upplýsingar á ensku.