Spjöllum með hreim

Spjöllum með hreim eru fjölbreyttar samverustundir fyrir þau sem vilja æfa sig að tala íslensku í vinalegu umhverfi. Viðburðirnir, sem haldnir eru vikulega, eru einnig frábær leið til að kynnast öðrum sem eru líka að læra. Spjöllum með hreim skiptist í þrjár tegundir viðburða sem gestir geta valið úr eftir áhugasviði og kennsluaðferð. Öll velkomin, einnig þau sem eru að byrja að læra íslensku! Allir viðburðirnir eru ókeypis og engin skráning, bara mæta, þú mátt koma eins oft og þú vilt!
Dagskráin vor 2026
Allir viðburðirnir fara fram á Borgarbókasafninu Grófinni, á laugardögum, kl. 11:30-13:30
Spilum og spjöllum
Lesum og spjöllum
Skoðum og spjöllum
- 17. janúar - Listasafn Einars Jónssonar
- 7. febrúar - Ljósmyndasafn Reykjavíkur
- 28. febrúar - Safnahúsið Hverfisgötu
- 21. mars - Spilum og spjöllum í Grófinni
- 18. apríl - Listasafn Reykjavíkur Hafnarhús
- 9. maí - Þjóðminjasafn Íslands
- 30. maí - Hönnunarsafn Íslands í Garðabæ (ath. farið verður með rútu frá Borgarbókasafninu Grófinni)


