BORGARBÓKASAFNIÐ

Hefur þú heimsótt Verkstæðið, tónlistar- og myndvinnsluver, á 5. hæð Borgarbókasafnsins Grófinni? Vissirðu að þar er að finna græjuparadís margmiðlunar? Hvort sem þú þarft að klippa afmælisvídeó fyrir ömmu þína eða taka upp stef fyrir nýtt hlaðvarp sem þú ert að vinna með gömlum bekkjarfélaga úr Landbúnaðarháskólanum, þá finnurðu græjurnar á 5. hæðinni.
Tónlistar- og myndvinnsluverið er fullbúið iMac tölvum og midi hljómborðum, með tónlistarforritum eins og Ableton Live, GarageBand, Logic Pro X og Reaper.
Í tölvunum er aðgangur að Adobe Creative svítunni (Photoshop, InDesign o.fl.) og Final Cut Pro fyrir myndbandagerð, myndvinnslu og hönnun.
Á staðnum er grænskjár sem gestum býðst að nota og í opnum aðstoðartímum er hægt að óska sérstaklega eftir leiðsögn og kennslu.
