BORGARBÓKASAFNIÐ

Á Borgarbókasafninu í Kringlunni og Sólheimum er notendum, 18 ára og eldri, sem eiga bókasafnskort í gildi og með virkt PIN númer, boðið upp á að nýta sér þjónustu safnanna utan hefðbundins þjónustutíma og án starfsfólks.
Þessi þjónusta kallast Umframopnun+.
Umframopnun+ Kringlunni
Umframopnun+ Sólheimum
Notendur, 18 ára og eldri, sem eiga bókasafnskort í gildi og með virkt PIN númer eru með aðgang að Umframopnun+
Til að komast inn þarf skrá sig inn með kennitölu eða bókasafnskorti og PIN númeri. Börn mega koma með í fylgd fullorðinna. Mikilvægt er að aðrir notendur sem ekki eru með bókasafnskort fylgi notendum hvorki þegar þeir koma inn eða fara út. Ekki er heimilt að lána öðrum aðganginn.
Skila og fá lánað ・ Sækja frátektir ・ Lesa blöð, bækur og tímarit ・ Læra ・ Spila borðspil ・ Fara í tölvu ・ Nýta þráðlaust net ・ Prenta út, skanna eða ljósrita skjöl ・ Funda með öðrum sem einnig hafa aðgang・Slaka á
Nánari upplýsingar:
umframopnun@reykjavik.is