BORGARBÓKASAFNIÐ
Stendur til að ferma eða halda afmælisboð og ekki til form undir Rice Crisipies - kökuna? Þá er tilvalið að kíkja í Borgarbókasafnið Sólheimum en þar er gott úrval af bökunarformum til útláns, sem henta við ýmis tækifæri.
Það er ekki einu sinni nauðsynlegt að koma í Sólheimana því hægt er að fá formin send í önnur söfn Borgarbókasafnsins og í bókasöfn Seltjarnarness og Mosfellsbæjar.
Formin eru lánuð út í 14 daga.
Hægt er að taka formin frá hér á Leitir.is með því að skrá sig inn á Mínar síður.
