BORGARBÓKASAFNIÐ

Barnadeildin í Grófinni er á annarri hæð. Þar er gott rými fyrir börn til að lesa og leika sér. Afgirt horn er fyrir yngstu börnin með góðum sófa, harðspjaldabókum og ýmsu sem hentar ungum börnum. Þar verða öll að vera á sokkaleistunum. Á hæðinni eru einnig sófar sem foreldrar geta sest í og lesið fyrir börnin eða bara spjallað. Aðstaða til að skipta á bleium er á salerni og einnig er hægt að fá lánaðar kerrur.
Sögustundaherbergið er vinsælt rými, þar sem börnin geta mátað búninga eða kúrt innan um dýnur og púða og klifrað á litlum húsum. Fjölbreytt úrval af spilum eru í boði fyrir þau sem vilja setjast niður og spila.
Hér er auðvitað boðið upp á fjölbreyttan safnkost, m.a. bækur fyrir byrjendur, þykkar skáldsögur fyrir þau eldri, teiknimyndasögur, Syrpur, ljóðabækur og ævintýri. Einnig er gott úrval af DVD-diskum og tónlist.
Safnið á ágætt úrval af bókum á erlendum tungumálum. Tvítyngd börn ættu því að geta fundið eitthvað að lesa. Hér er yfirlit þeirra tungumála sem finna má í barnadeild bókasafnsins í Grófinni.
Starfsfólk er boðið og búið að finna lesefni, tónlist og DVD-diska við hæfi hvers og eins.