Bókasafnið á mínu tungumáli

Barnabækur á ýmsum tungumálum
Allar barnadeildir Borgarbókasafnsins geyma barnabækur á íslensku og ensku. Bókasöfn í Gerðubergi, Grófinni og Spönginni geyma barnabækur á pólsku. Í Gerðubergi og Grófinni er gott úrval barnabóka á mörgum fleiri tungumálum.
Grófin
- Arabíska - عربي
- Danska - Dansk
- Franska - Français
- Færeyska - Føroyskt
Ítalska - Italiano - Norska - Norsk
- Portúgalska - Português
- Pólska - Polski
- Rússneska - Русский
- Spænska - Español
- Sænska - Svenska
Tékkneska - Čeština - Úkraínska - Yкраїнська
- Þýska - Deutsch
Gerðuberg
- Arabíska - عربي
- Kúrdíska - کوردی
- Lettneska - Latviešu valoda
- Litáíska - Lietuvių kalba
- Pólska - Polski
- Rúmenska - Limba română
- Spænska - Español
- Tagalog
- Taílenska - ภาษาไทย
- Víetnamska - Tiếng Việt
Fá bækur sendar
Það er alltaf hægt að fá bækur sendar á það bókasafn sem er þér næst.
Á borgarbokasafn.leitir.is getur þú tekið frá bækur og valið að fá sendar á þitt bókasafn, einnig getur starfsfólk aðstoðað þig við að panta bækur af öðrum söfnum.
Innkaupatillögur
Þú getur aðstoðað okkur við að gera bókakost safnins enn fjölbreyttari með því að senda okkur innkaupatillögu - bækurnar mega vera á hvaða tungumáli sem er.
Po polsku
Biblioteki w Gerðuberg, Grófin i Spöngin oferują książki dla dzieci w języku polskim.
Na stronie borgarbokasafn.leitir.is możesz zarezerwować książki i zlecić ich wysyłkę do najbliższej biblioteki. Pracownicy biblioteki pomogą Ci również w zamawianiu książek z innych bibliotek.
Możesz pomóc nam w jeszcze większym urozmaiceniu oferty bibliotecznej, wysyłając nam propozycję zakupu książek w dowolnym języku.

Sögustundir á ýmsum tungumálum
Stundum eru sögustundir á mismunandi tungumálum skipulagðir á vegum Borgarbókasafnsins. Fylgstu með dagskránni til að vita hvenær næsta sögustund á þínu tungumáli er.
Þér er einnig velkomið að halda sögustund á þínu eigin tungumáli. Þú velur sögurnar, tungumálið, bókasafnið og tímasetningu og býður þeim sem þú vilt að koma og eiga notalega stund saman á bókasafninu.
Þú mátt nota bækur úr safni Borgarbókasafns eða koma með þína eigin. Hafðu í huga að sögurnar verða að vera við hæfi barna og mega ekki innihalda ofbeldi, kynferðislega gróft efni, kynþáttafordóma, kynjamismunun, ablisma eða mismunun í nokkru formi.
Hafðu samband og láttu okkur vita hvaða tungumál, hvaða bókasafn og hvenær þú vilt halda viðburðinn. Starfsfólk Borgarbókasafnsins hlakkar til að aðstoða þig við að gera sögustundina þína sem notalegasta!
Fanny Sissoko Verkefnastjóri | Inngilding og fræðsla: fanny.sanne.sissoko@reykjavik.is

