Hannyrðastundir

Ertu með eitthvað á prjónunum? Ertu að hekla fallegt sjal eða sauma út púða?
Þegar hlátrasköllin glymja og þjóðfélagsmál, jafnt sem dægurmál eru brotin til mergjar, þá er að öllum líkindum hannyrðastund á bókasafninu. Öll sem vilja, byrjendur og lengra komin, eru velkomin í þessar notalegu stundir. Við spjöllum um daginn og veginn, fáum okkur kaffi og sinnum handavinnunni í góðum félagsskap.
Hægt er að fylgjast með dagskránni í viðburðadagatalinu okkar hér á heimasíðunni eða á Facebook. Engin skráning - bara mæta!
Við eigum til mikið úrval af alls kyns bókum og tímaritum um handavinnu sem hægt er að sækja innblástur í, lesa á safninu og korthafar geta fengið lánað heim.
Borgarbókasafnið Gerðubergi
Hannyrðastundir alla miðvikudaga frá kl. 13:00 - 15:00, til 24. júní.
Borgarbókasafnið Grófinni
Hannyrða- og bókahittingar. Við komum saman á fimmtudögum kl. 15:00 - 1:007 í Hannyrðahorninu á 2. hæð frá september fram í lok apríl.
Lopi og Orð eru notalegar samverustundir á vegum nemenda í íslensku sem annað mál við Háskóla Íslands. Við hittumst á tveggja vikna fresti á sunnudögum frá kl. 15:00 - 16:30 á 2. hæð í Grófinni til 31. maí. Viðburðirnir eru opnir öllum og eru fyrir þau sem vilja æfa sig að tala íslensku í notalegu og afslöppuðu umhverfi.
Borgarbókasafnið Spönginni
Hannyrðastundir alla fimmtudaga kl. 13:30 - 14:30, frá september til maí. Við hittumst í blágrænu sófunum á annarri hæðinni, tökum upp handavinnuna, spjöllum og fáum okkur kaffibolla.
Borgarbókasafnið Úlfarsárdal
Hannyrðastundir alla þriðjudaga kl. 13:00 - 15:00, frá september til maí.
Borgarbókasafnið Árbæ
Fjórir hannyrðaklúbbar hittast í Borgarbókasafninu Árbæ en eru allir fullsetnir eins og er.
Hannyrðabækur
Langar þig að stofna þinn eigin hannyrðaklúbb í samstarfi við bókasafnið?
Þá er um að gera að hafa samband og við finnum honum góðan stað og heppilega tímasetningu.
Einnig geta „heimilislausir“ hannyrðaklúbbar tyllt sér niður á safn að eigin vali þegar grípa á í prjónana eða útsauminn. Gott er þó að tala við starfsmann áður ef hópurinn er fjölmennur til að vera viss um að það skarist ekki á við aðra dagskrá í húsinu.
Nánari upplýsingar veita starfsmenn á söfnunum en einnig er hægt að hringja eða senda línu í tölvupósti á borgarbokasafn@borgarbokasafn.is.