Samvera
Samvera eru vikulegir viðburðir sem sameina íslenskunemendur og þau sem eru íslenskumælandi.
Saman kynnumst við yfir kaffibolla og spjöllum og æfum okkur í tungumálinu, í öruggu og vinalegu umhverfi. Það eru þrjár mismunandi tegundir viðburða í boði:

Samvera í náttúrunni
Gönguferðir í náttúrunni
Alla laugardaga 18. apríl - 30. maí og 5. september - 26. September
kl. 11.30 til 13.30
Gerðuberg
Öll velkomin sem hafa áhuga á útivist og langar að kynnast nýju fólki, þvert á tungumál. Hittumst á bókasafninu í Gerðubergi (Breiðholt, 11 Reykjavík), fáum okkur kaffi og spjöllum smá áður en við förum í léttan göngutúr í nágrenninu og í Elliðaárdalnum. Þegar veðrið er mjög slæmt munum við vera á bókasafninu og spila borðspil.
Bókasafnið er á efri hæðinni í húsi við Gerðuberg 3-5 í Breiðholti. Strætóar: 3, 4, 12, 17 (stoppistöð: FB).'
Gönguferðirnar eru leiddar af kennurum í íslensku sem annað mál.

Samvera - Hvað er að frétta?
Lesum fréttirnar saman
Alla laugardaga frá 3. október - 19. desember
kl. 11.30 til 13.30
Gerðuberg
Fáum okkur te/kaffi og lesum saman íslenskar fréttir. Að lesa fréttir er góð leið til að læra flóknari orðaforða, ræða um hvað er að gerast á Íslandi og læra um mikilvæg málefni sem gætu haft áhrif okkur. Við munum skoða fréttir á auðskiljanlegri íslensku. Þetta á að vera öruggt rými fyrir öll og við munum forðast fréttir sem eru of sundrandi eða átakanlegar. Einnig verður í boði að spila borðspil.
Viðburðirnir verða leiddir af kennurum í íslensku sem annað mál.

Samljóða
Ljóðasmiðjur
Alla miðvikudaga frá 16. september - 2. desember, kl. 16:30-18:00
Grófin
Á þessum viðburðum munum við leika okkur með íslenska tungu og semja ljóð, bæði þau sem eru að læra málið og þau sem tala það reiprennandi. Smiðjurnar verða leiddar af bæði íslenskum rithöfundum og rithöfundum sem hafa íslensku sem annað tungumál. Nánari upplýsingar verða birtar á miðlum Borgarbókasafnsins síðar á árinu.

Frekari upplýsingar
Fanny Sissoko, Verkefnastjóri Inngildingar og Fræðslu
fanny.sanne.sissoko@reykjavik.is
Samvera er styrkt af Þróunarsjóði innflytjenda.